Smári McCarthy, þingmaður Pírata, segir að kerfið sé búið að grafa svo mikið undan í þágu einkafyrirtækja að kerfið gæti ekki virka á tilskilinn hátt án þeirra. „Það skrifast á Sjálfstæðisflokkinn og hamfarakapítalismann þeirra, fyrst og fremst, ásamt þeirra viðhlæjendum í öðrum flokkum.“
Þetta segir Smári í pistli á Facebook-síðu sinni en tilefnið er mál Íslenskrar erfðagreiningar og ákvörðun Kára Stefánssonar, forstjóra fyrirtækisins, að hætta að sjá um skimun fyrir COVID-19 á landamærunum frá og með næstu viku. Smári segir að vandamálið sé ekki það að Íslensk erfðagreining hafi ákveðið að láta ekki misnota sig til eilífðar án samninga og samráðs.
„Það er nefnilega rétt sem Kári Stefánsson segir: Sýkla- og veirufræðideild LSH ætti undir öllum eðlilegum kringumstæðum að vera nægilega vel útbúin tækjum, aðföngum og mannskap til að geta tekist á við þetta verkefni. LSH ætti heilt yfir að vera betur í stakk búið en það er. Það er ekki skortur á fagþekkingu eða vilja til verksins, þvert á móti. En það er búinn að vera viðvarandi skortur á fjármagni,“ segir Smári.
Hann segir að þetta sé ekki bara bundið við heilbrigðiskerfið. „Sama hvert litið er hefur Sjálfstæðisflokkurinn undanfarna áratugi notað valdastöðu sína til að moka verkefnum yfir á einkageirann, oftast með um 30% meiri kostnaði, og ábyrgðin áfram hjá ríkinu.“
Smári bendir á að einhvern veginn hafi okkur tekist að byggja Ölfusárbrú árið 1945 – þegar landið var nýstofnað, fátækt og nýkomið undan seinni heimsstyrjöldinni – en í dag sé það lífsins ómögulegt að byggja brú án þess að fá einkaaðila að verkefninu. Þrátt fyrir að Ísland sé eitt ríkasta land heims.
„Það eina sem breyttist var viðhorf þeirra sem sitja að völdum ár eftir ár, áratug eftir áratug, til þess hvert hlutverk þeirra sé. Einu sinni snérist þetta um að búa til gott samfélag. Núna snýst þetta um að maka krókinn,“ segir Smári.
Smári segist viðurkenna að það sé svolítið ánægjulegt að sjá ríkisstjórnina, sem getur ekki tekið auðveldustu ákvarðanir um almannahag, fá ærlega á baukinn frá einum einkaaðilum sem Sjálfstæðismenn hömpuðu á sínum tíma. „Þótt ég hefði gjarnan viljað sleppa því að sjá Kára Stefánsson taka enn eitt frekjukastið, sérstaklega þegar það gæti bitnað á almannaheilsu og öryggi.“
Smári segir að þórðargleðin sé vont nesti og spyr hvort ekki væri betra ef ríkisstjórnin tæki sig til og gerði það sem gera þyrfti til að Sýkla- og veirufræðildeild geti sinnt umræddum skimunum. „Og það án þess að brenna út starfsfólkið í leiðinni? Það væri fínt. En ég ætla ekki að halda niður í mér andanum. Vil ekki verða jafn blár og skepnan sem bjó til vandamálið.“