Birtir níðið um sjálfa sig á netinu

Sema Erla Serdar, formaður framkvæmdastjórnar Samfylkingarinnar og formaður flokksins í Kópaovogi hefur skorið upp herör gegn hatursumræðu á netinu og hefur af því tilefni birt á fésbókarsíðu sinni allt níðið sem hún hefur fundið um sjálfa sig.

\"Ég birti þetta vegna þess að ég sé engan tilgang í því að fela mannhatur, eins og oft er að finna á netinu, og fólk verður einfaldlega að standa með því á stærri vettvangi en þau halda oft að þau séu að birta slík ummæli á,“ skrifar hún í færslu sinni frá því í gærkvöld, en hún hefur farið sem eldur um sinu í netheimum. Sjálf er Sema mikill talsmaður fjölmenningar á Íslandi og sjálf af tyrkneskum ættum.

Á fésbókarsíðu sinni birtir hún nokkur ummæli um sig af samfélagsmiðlum og athugasemdakerfum þar sem hún er meðal annars kölluð tæfa, bullukolla og barnaleg. Þar er hún einnig sögð vilja \"múslima-væða þjóðina“ og einn lætur að því liggja að hún og fjölskylda hennar eigi að sitja inni fyrir fíkniefnasmygl.

\"Þegar ég hóf þátttöku í opinberri stjórnmálaumræðu og stuttu síðar afskipti af stjórnmálum fyrir þó nokkru síðan vissi ég að sjálfsögðu út í hvað ég væri að fara og við hverju mátti búast, sérstaklega vegna uppruna míns og nafns,“ skrifar Sema og bætir við: \"Ég lærði fljótt að láta „virka í athugasemdum“ og aðra brjálæðinga í umræðunni ekki hafa of mikil áhrif á mig [...] enda segja persónuárásir ávallt meira um þann sem þær stundar.“

Sema segist ekki birta þessi ummæli nafngreinds fólkst til að kaupa sér samúð, enda sé það orðið \"hálfgert samasemmerki“ milli þátttöku í samfélagsumræðu og netníðs. Henni sé aftur á móti ofboðið og hún ætli ekki að halda hlífiskyldi yfir þeim sem taki þátt í slíku. Hún vonast til þess að mögulega einn eða tveir hugsi sig um áður en þeir endurtaki leikinn.

Netfærslu Semu má sjá hér.