Sjúklega skotin í nýja eiginmanninum

„Það eru svo ó­tal­margar á­stærðu fyrir því að ég elska þennan dá­sam­lega mann minn og ég er alltaf jafn þakk­lát fyrir að við fundum hvort annað. Ég er sjúk­lega skotin í honum, svo ég tali nú að­eins um yfir­borðs­kennda hluti en hann er allt sem heillar mig, með ó­trú­lega fal­legt and­lit, ljós yfir­litum, há­vaxinn, axla­breiður og stór og sterkur,“ skrifar Heiða Ólafsdóttir í einlægri Facebook færslu.

Hún og hugbúnaðarfræðingurinn Helgi Páll Helgason giftu sig í dag í Garðakirkju. Helgi á jafnframt afmæli í dag og því um að ræða sannkallaðan hátíðisdag.

„Við eigum svo vel saman, hlægjum eins og vit­leysingar, elskum að upp­lifa og njóta og svona gæti ég lengi talið. Við eigum svo fal­leg líf saman og ég get ekki beðið eftir öllum árunum okkar þangað til við verðum eld­gömul og grá. Í dag tökum við síðan loka­skrefið í að sam­einast því í dag giftumst við. Ég hlakka til að vera góð við þig alla daga elsku fal­legi unnusti og verðandi eigin­maður. Elska þig af öllu hjarta.“