Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn lang stærst­ur á þing­i sam­kvæmt nýj­um Þjóð­ar­púls­i

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn feng­i 17 þing­menn ef geng­ið yrði til Al­þing­is­kosn­ing­a í dag sam­kvæmt nýj­um Þjóð­ar­púls­i Gall­up og yrði lang stærst­ur flokk­a á þing­i. Þar á eft­ir kæmu Vinstr­i græn­ir með níu þing­menn, þá Pír­at­ar átta, Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn og Sam­fylk­ing feng­i sjö þing­menn hvor um sig og Við­reisn sex. Mið­flokk­ur­inn, sem dal­ar í fylg­i mill­i mán­að­a, feng­i fimm, Sós­í­al­ist­a­flokk­ur Ís­lands, sem er ekki á þing­i nú, feng­i þrjá og Flokk­ur fólks­ins einn þing­mann.

VG bæt­ir við sig tveim­ur prós­ent­u­stig­um mill­i mán­að­a en fylg­i ann­arr­a flokk­a er nokk­uð stöð­ugt. Nær 24 prós­ent segj­ast mynd­u kjós­a Sjálf­stæð­is­flokk­inn, tólf prós­ent Sam­fylk­ing­un­a og Pír­at­a, um tíu prós­ent Fram­sókn­ar­flokk­inn, tæp­leg­a tíu prós­ent Við­reisn, fimm prós­ent Sós­í­al­ist­a­flokk Ís­lands og tæp­leg­a fimm prós­ent Flokk fólks­ins.

Rúm tíu prós­ent þeirr­a sem þátt tóku í Þjóð­ar­púls­in­um tóku ekki af­stöð­u eða vild­u ekki grein­a frá henn­i og átta prós­ent sögð­ust ætla að skil­a auðu eða ekki mæta á kjör­stað.

At­hygl­i vek­ur að mun fleir­i segj­ast styðj­a stjórn­ar­flokk­an­a, 61 prós­ent, en styðj­a ein­hvern stjórn­ar­flokk­an­a. Það eru í heild 48 prós­ent. Stuðn­ing­ur við rík­is­stjórn­in­a jókst um 0,4 prós­ent­u­stig mill­i mán­að­a.