Sindri Þór Stefánsson sem strauk úr fangelsinu að Sogni og flúði land aðfaranótt þriðjudags, segist hafa verið haldið í fangelsi án dóms og laga og muni sanna það. Þetta kemur fram í yfirlýsingu sem hann sendi Fréttablaðinu. Þar reynir hann að útskýra sína hlið málsins og segist ætla að koma heim mjög fljótlega.
Sindi segist hafa þurft að þola gæsluvarðhald í tvo og hálfan mánuð að ósekju og án allra sönnunargagna, og ætlar að kæra málið til Mannréttindadómstóls Evrópu. Hann segir í yfirlýsingu til Fréttablaðsins: „Mér hefur ekki verið birt eitt einasta sönnunargagn og mér var ógnað og hótað lengri einangrun meðan einangrun átti sér stað. Mér var margoft sagt að ég fengi að ganga út ef ég myndi staðsetja svokallað þýfi sem ég er grunaður um að hafa stolið. Ég var látinn dúsa í einangrun, sem refsing, því þeir fundu ekki þetta þýfi. Án sönnunar.“
Hann segist hafa skrifað undir plagg þar sem hann væri frjáls ferða sinna enda gæsluvarðhaldsúrskurður yfir honum útrunninn. Hins vegar hafi dómari tekið sér sólarhrings frest til að ákvaða sig um framhaldið. Hann hafi verið frjáls maður en neyddur til að undirrita skal þar sem hann samþykkir að gista fangaklefa fari hann frá Sogni án skýringa.
Orðrétt skrifar hann: „Ég mundi aldrei reyna að flýja fangelsi ef ég væri löglega sviptur frelsi mínu af ákvörðun dómara, það er staðreynd“. Nú sé unnið að því að semja við lögregluna á Íslandi um að hann fái að koma heim án þess að vera handtekinn erlendis.
Sindri eru grunaður um aðild að þjófnaði á um 600 tölvum úr þremur gagnaverum í Reykjanesbæ.
Fréttina á vef Fréttablaðsins má sjá hér