Ný reglugerð um samkomutakmarkanir tók gildi hér á landi á miðnætti en samkvæmt nýjum reglum mega nú allt að 20 manns koma saman auk þess sem frekari tilslakanir voru gerðar sem snúa að ýmis konar þjónustu.
Það vekur þó athygli að engar breytingar voru gerðar á starfsemi veitingastaða, fyrir utan að krár megi opna á nýjan leik. Veitingamenn eru ekki par sáttir við þessa ákvörðun og hafa kallað eftir frekari undanþágum.
Athafnamaðurinn Sigmar Vilhjálmsson, eða Simmi Vill eins og hann er gjarnan þekktur, er meðal þeirra sem hefur kallað eftir slíku en í grein sem hann birtir á Vísi í dag grátbiður hann heilbrigðisráðherra og sóttvarnalækni um endurmat. Mikill munur sé á 20 manna og 50 manna samkomutakmörkunum.
„Í dag, 15. apríl tók gildi kærkomin tilslökun á sóttvörnum í ljósi árangursins sem náðst hefur. En það er eins og veitingastaðir hafi gleymst,“ skrifar Simmi í pistli sínum en hann segir veitingastaði hafa verið skildir eftir eina ferðina enn. „Veitingastaðir eru svo sannarlega ekki hættulegir.“
Simmi vísar til þess að sóttvarnir séu í hávegum hafðar hjá flestum veitingastöðum en engu að síður þurfi þau að sætta sig við 20 manna hámarksfjölda. „Það að hækka ekki þessa takmörkun núna aftur er mér fyrirmunað að skilja. Ekki nema að það hafi bara gleymst. Ég vona að það sé raunin og að hægt sé að leiðrétta það.“
„Undirritaður hefur barist við að halda rekstri veitingastaða gangandi nú í 13 mánuði, án þess að segja upp starfsfólki. Kostnaðurinn hefur fallið á fyrirtækið og eigendur. En við höfum ávallt litið svo á að það sé okkar skylda að standa vörð um starfsmenn okkar og leggja okkar af mörkum að gera gott úr því sem við höfum úr að spila,“ segir Simmi.
„Undirritaður er reiðubúinn til að falla á kné og grátbiðja um endurmat á þessum fjöldatakmörkunum. Næstu þrjár vikur eru langur tími eftir þá þrettán mánuði sem við höfum búið við erfiðustu mögulegu rekstraraðstæður sem hugsast getur,“ segir Simmi enn fremur.