Sigurjón M. Egilsson, fjölmiðlamaður og ritstjóri Miðjunnar, segir að staða Katrínar Jakobsdóttur forsætisráðherra kunni að vera á merkum tímamótum.
„Hún teflir djarft. Katrín hefur tekið að sér að túlka vilja þess fólk sem skrifaði vilja til að nýja stjórnarskráin verði samþykkt á Alþingi,“ segir hann í pistli á Miðjunni og vísar í viðtal Kastljóssins við Katrínu í gærkvöldi. Þar sagði hún að þeir rúmlega 43 þúsund sem skrifuðu undir áskorun þess efnis að Alþingi samþykki nýja stjórnarskrá vilji vissulega breytingar á stjórnarskrá, en ekki endilega það sem það samþykkti með undirskriftum sem var að ný stjórnarskrá stjórnlagaráðs ætti að taka gildi.
„Þetta er djarfur leikir hjá forsætisráðherra. Sjálf ætlar hún, ein og sér, ekki í nafni ríkisstjórnarinnar eða eigin þingflokks, að leggja til breytingar á gildandi stjórnarskrá. Mögulega eru margir fyrrverandi kjósenda Katrínar og Vinstri grænna, meðal þess fólks sem skrifaði undir. Geti það fólk ekki sæst á framgöngu forsætisráðherra nú muni það koma fram í fylgi við Katrínu og VG,“ segir Sigurjón sem segir að staða Katrínar sé þröng.
„Forsætisráðherra virðist einangruð í eigin ríkisstjórn. Hinir flokkarnir, og jafnvel hennar eigin, eru ekki og verða ekki samferða Katrínu í þessu mjög svo viðkvæma og pólitískt erfiða máli.“
Þá segir Sigurjón að Katrín hafi brennt margar brýr að baki sér og mestu muni þar um U-beygjuna til Valhallar eftir kosningar. Margir fyrrum kjósendur muni seint fyrirgefa það.
„Svo merkilegt sem það er, er Katrín forsætisráðherra ein að berjast fyrir eigin breytingum á stjórnarskrá. Hefur ekki eigin ríkisstjórn með sér og mjög vafasamt er að meirihluti Alþingis fylgi henni. Fari svo, hvað verður um Katrínu þá?“