Söngkonan ástsæla Sigríður Thorlacius opnar sig um andlát tveggja systra sinna í nýju myndbandi frá Krabbameinsfélaginu. Sigríður er yngst fimm systra, en tvær systur hennar fengu heilaæxli og létust með stuttu millibili, Ingileif árið 2010 og Sólveig árið 2014.
Ingileif var veik lengi, þegar hún lést fór í gang ferli hjá Sigríði þar sem hún hlúði að sér og öðrum. „Og það er kannski mín upplifun að það hafi verið að skríða saman þegar hin systir mín greinist þremur árum seinna.“
Sólveig veiktist árið 2013 og lést í sumarbyrjun 2014.
Sigríður segir að hún hafi áttað sig á því nýlega að fjölskyldan hafi aldrei notað orðið krabbamein. „Þær fengu heilaæxli og við notuðum það. Og ég velti fyrir mér hvort að það sé út af því að þetta er svo rosalega stórt orð og erfitt að segja,“ segir hún. Þá er mikil hræðsla við höfuðverki í fjölskyldunni.