Sigmundur Davíð kallar á Brynjar: Gæti „hætt að kyngja ælunni“

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins og fyrrverandi forsætisráðherra, hringdi í Brynjar Níelsson, þingmann Sjálfstæðisflokksins, eftir að sá síðarnefndi hlaut harða útreið í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins síðustu helgi. Brynjar ætlaði sér annað sætið á lista flokksins í Reykjavík en lenti í fimmta sæti. Þó að Brynjar ætti þannig möguleika á þingsæti þá vildi hann frekar hætta, en það má heita opið leyndarmál að Brynjar hafi viljað verða dómsmálaráðherra einn daginn.

Sigmundur Davíð sagði í þættinum Harmageddon í gær að Brynjar væri velkominn í flokkinn.

„Ég hringdi í hann,“ sagði Sigmundur. „Mér fannst farið illa með hann hjá Sjálfstæðisflokknum. Ef þú ert að fiska eftir því hvort ég hafi boðið honum eitthvað sérstakt, þá raða ég ekki upp á lista. Ég hef margsinnis sagt honum að hann eigi frekar heima í Miðflokknum.“

Sigmundur segir að Brynjar sé meira en velkominn. „Við viljum auðvitað fá Brynjar með okkur eins og annað gott fólk. Þó hann sé orðinn andlega þreyttur eins og hann hefur lýst þá myndi hann fljótt hressast og ná fyrri styrk ef hann gengi til liðs við okkur,“ sagði hann.

„Það besta fyrir hann gæti verið að ekki aðeins gæti hann haldið áfram að segja það sem honum finnst, hann gæti líka farið að greiða atkvæði í samræmi við það og hætt að kyngja ælunni eins og hann hefur sagt.“