Sigmar Guðmundsson, þingmaður Viðreisnar, segir að nýjar breytingar á sóttvörnum séu „hænuskref í rétta átt“. Þetta kemur fram í færslu sem hann birtir á Facebook síðu sinni.
„Það hafa verið þrír á gjörgæslu að jafnaði frá áramótum og tölur frá því gær segja að 20 hafi legið á spítalanum vegna Covid, þótt fleiri hafi vissulega verið með Covid en verið inniliggjandi af öðrum ástæðum. Nágrannalönd okkar eru að ganga enn lengra en við og eru sum hver að aflétta öllu. Það er því óhætt að segja að þessi afléttingaáætlun valdi vonbrigðum,“ segir Sigmar.
Ríkisstjórnin tilkynnti nýjar reglur í dag sem taka gildi á miðnætti. . 50 mega koma saman og nándarregla verður einn metri í stað tveggja. Þá verður enn grímuskylda. Vonast er til þess að hægt verði að aflétta öllum takmörkunum á sex til átt vikum.