Siggi Stormur: Hérna verður besta veðrið um helgina – Toppaðstæður fyrir lúsmýið

„Ef horft er til sólskinsstunda og hitafars þá mun sunnanvert landið og síðan vesturlandið hafa vinninginn í veðrinu þessa stóru ferðahelgi,“ segir Sigurður Þ. Ragnarsson, Siggi Stormur, um veðrið þessa fyrstu helgi júlímánaðar.

Sigurður segir að á morgun, laugardag, verði fremur hæg norðlæg eða breytileg átt, en strekkingur við austurströndina. Það verður bjart með köflum sunnan og vestan til á landinu og hætt við stöku skúrum. Annars verður víðast skýjað og úrkomulítið og hitinn á bilinu 6 til 18 stig, hlýjast á Suðausturlandi. Það fer svo að rigna austast á landinu seint annað kvöld með vaxandi vindi.

Sigurður segir að á sunnudag muni vindur vaxa nokkuð á landinu og gætum við séð norðvestan 8 til 15 metra á sekúndu þar sem hvassast verður austan til. Á Norðaustur- og Austurlandi má gera ráð fyrir rigningu en þurrt verður og bjart með köflum sunnan og suðvestan til. Hiti verður þetta frá 4 til 16 stig, hlýjast sunnanlands.

Besta veðrið verður þó á sunnanverðu landinu og gætu nokkuð myndarlegar hitatölur sést.

„Við gætum verið að sjá á suðausturlandi á laugardeginum 20 stiga hitamúrinn falla, í V-Skaftafellssýslu. Vindur verður víðast hægur og því kann lúsmýið að herja á ferðamenn sem aðra. Það verða síðan allnokkrar breytingar á sunnudeginum þegar úrkomubelti verður yfir Norðaustur- og Austurlandi og vindur vex allstaðar á landinu. Hann verður þó stífastur suðaustan og austan til. Á sunnudeginum verður að líkindum bjartviðri á Suðurlandi og eitthvað norður með Vesturlandinu. Það er ekki að sjá heiðríkju en það gæti orðið ágætlega bjart veður. Hitinn á sunnudeginum dalar aðeins,“ segir Sigurður að lokum.