Hressasti útvarpsmaður síðari tíma, Sigurður Hlöðversson, best þekktur sem Siggi Hlö, segir að það sé eins og enginn Covid-faraldur sér í Manchester. Hann segir á Facebook að hann hafi lent þar í gærmorgun.
„Það fór enginn í sóttkví, það var enginn sem tilkynnti okkur um það, ekki starfsfólkið á flugvellinum, ekki fólkið sem tók testin, ekki hótelstarfsfólkið – ENGINN,“ segir Siggi.
„Allir í mínum hóp fóru beint út að njóta lífsins eftir að hafa innritað sig á hótelið. Hér er nánast enginn með grímur þó grímuskylda sé skollin á. Hér er eins og Covid sé ekki til.“
Niðurstaða hans er: „ÞETTA ER EKKERT MÁL!“
Siggi tekur fram að farið var eftir öllum reglum.
„Hér í ferðinni er hjúkrunarfræðingur sem las reglurnar. Mælst er til þess að vera 5 tíma í einangrun. Svo enginn braut neitt af sér skv því.“