Sesselja Guðmundsdóttir, kona frá Hveragerði, skrifaði grein sem birtist á bb.is í dag. Þar fjallar hún um ferðalög sín um Vestfirði. Það sem virðist hafa haft talsverð áhrif á þau var að hún ferðaðist um á svokölluðum kúkúkamper.
Svo virðist sem erlendir ferðamenn séu duglegri við að nota slík farartæki heldur en Íslendingar. Og vegna þess héldu margir að Sesselja væri túristi, en hún fann fyrir fordómum vegna þess.
„Því miður var ég tvisvar sinnum vör við fordóma gagnvart „túristum“ á svæðinu sem lifir að mestu á slíkum gestum.“
Fyrra atvikið átti sér stað við höfnina í Hólmavík.
„Í fyrra skiptið var ég að koma frá Norðurfirði til Hólmavíkur til þess að gista þar á tjaldstæðinu. Bíllinn var haugdrullugur eftir regnblauta, grófa malarvegina og engir kústar eða slöngur á bílaþvottaplaninu við fyrrum bensínsjoppu. Ég ók því niður á bryggju og þvoði bílinn þar enda alltaf tiltækar vatnsslöngur þar. Svo brá við að þegar ég var að skrúfa fyrir vatnið kom til mín maður og spurði á ensku hvort ég hefði skolað bryggjuna. Ég varð hvumsa við og sagðist telja það því mikið vatn hefði runnið um bryggjuna með bíldrullunni. Þetta sagði ég á íslensku. Maðurinn sagði: „Nú, ertu Íslendingur. Þetta er örugglega í góðu lagi.“ Ég bauðst svo til þess að færa bílinn og skola bryggjuna betur en hann taldi það óþarfa.“
Seinna skiptið átti sér stað á Snæfjallaströnd við Ísafjarðardjúp.
„Í seinna skiptið sem ég varð vör við fordóma gagnvart „túristum“ var úti á Snæfjallaströnd við Ísafjarðardjúp. Ég hafði ekið um opið hlið á mínum KÚKÚ niður að húsinu Lyngholti (fyrrum skólahúsi) til þess að ganga þar um snyrtileg hlöð og taka myndir. Þá kemur akandi maður niður að húsinu til mín og tekur mig tali. Ég flýtti mér að afsaka mig og sagðist hafa ekið niður að bænum því opið hliðið hafði boðið mig velkomna með upplýsingaskiltum um bæjarnafn og skóla. Maðurinn. „Jú, allt í lagi, ég hélt þú værir „túristi.“.“
Þá spyr Sesselja: „Af hverju þurfa erlendir ferðamenn að skola betur bryggjuna á Hólmavík heldur en Íslendingar? Af hverju þarf að fylgjast betur með ferðum erlendra ferðamanna um Snæfjallaströndina heldur en Íslendingum?“
Hún bendir á ferðamamannaiðnaðurinn sé helsta tekjulind þjóðarinnar, og því finnst henni sjálfsagt að Íslendingar sýni þeim jákvætt viðmót og virðingu.