Sesar appelsínukakan með jólaívafi

Mæðgurnar Bryndís Stella Birgisdóttir innanhúshönnuður, sem ávallt er kölluð Stella og Inga Bryndís Jónsdóttir stíllisti eru mjög samrýndar og njóta þess að undirbúa aðventuna og jólin saman. Þær eiga sínar gæðastundir saman og leggja mikið upp úr einfaldleikanum. Í þættinum Matur og Heimili heimsótti Sjöfn Þórðar þær mæðgur og fékk innsýn í aðventu undirbúninginn. „Við mæðgurnar njótum þess að eyða aðventunni saman ásamt fjölskyldunni. Hver jól erum við með ákveðið jólaþema sem breytist ár frá ári. Núna í ár er þemað grænar greinar, náttúrulegir jólapakkar, þar sem litir og form er sótt í náttúruna.“

M&H Bryndís Stella Birgisdóttir & Inga Bryndís Jónsdóttir.jpg

Bryndís Stella Birgisdóttir og Inga Bryndís Jónsdóttir.

Kærleiksríkt innihald og fagurlega skreytir pakkar

Ein af uppáhalds gæðastundum þeirra mæðgna er að pakka inn jólapökkunum og skreyta. „Hefðir og siðir skipta okkur miklu máli. Við leggjum mikið upp úr því að pakkarnir séu fallegir og innihaldið kærleiksríkt.“ Það er heilög stund hjá þeim mæðgum og ræður einfaldleikinn ríkjum þegar kemur að því að pakka inn. „Í ár er eru það bastbönd, hvítur pappír og brúnir pokar sem prýða jólapakkana og tóna vel við náttúrulitina,“segja þær mæðgur og elska að nostra við hvert smáatriði. „Okkar gæðastund er tebolli, innpökkun, kertaljós og smákökubakstur. Hátíðin fyrir okkur nær hámarki sínu í miðnæturmessu í Hallgrímskirkju á aðfangadagskvöldi jóla.“

M&H Bryndís Stella Jólatré.jpg

Jólatré í stofunni stendur.

Jólin eru hið eðlilega ástand mannsins

„Við höldum mikið upp á aðventuna og aðdraganda jóla. Þessi einstaklega góða appelsínukaka með jólaívafi sem okkur langar að deila með lesendum gleður okkur alltaf jafn mikið og tendrar jólastemninguna í hjörtum okkar. Kakan á uppruna sinn að rekja til Frakklands og Frakkar kunna að baka einfaldar, gómsætar kökur sem bragð er af. Það var góður maður sem eitt sinn sagði: ,,Jólin eru hið eðlilega ástand mannsins”. Þannig ætti okkur öllum að líða allan ársins hring og við erum hjartanlega sammála honum,“segja þær mægður að lokum með bros á vör.

Sesar appelsínukakan með jólaívafi

150 g smjör

2 dl hrásykur

2 egg

½ dl safi úr einni appelsínu

Rifinn börkur af einni appelsínu

2 dl fínmalað spelt

1 dl möndlumjöl

1 tsk. lyftiduft

1 tsk. vanilluduft

Byrjið á því að hita ofninn í 175°C. Smjör og hrásykur þeytt saman. Einu eggi bætt út í, í senn. Þurrefnunum bætt út í. Því næst er appelsínusafanum og berkinum bætt saman við. Að lokum er öllu hrært saman í stutta stund og skal passa að hræra ekki of lengi svo kakan verði ekki seig. Deiginu hellt í milli stórt kringlótt form og sett inn í ofn. Bakið við 175°C gráður í um það bil 40 mínútur. Berið fram á einfaldan hátt og hægt er að skreyta kökuna með grænum greinum að eigin vali.

Myndir Valgarður Gíslason ljósmyndari.