Séra Skírnir Garðarsson, sem vikið var frá störfum sem héraðsprestur í apríl síðastliðnum, skoðar það nú að stefna séra Agnesi M. Sigurðardóttur, biskupi Íslands, vegna þjónustuloka hans.
Fjallað er um málið í Fréttablaðinu í dag.
Eins og greint hefur verið frá hefur biskup Íslands hafnað kröfum séra Skírnis um að afturkalla ákvörðun sína um að leysa hann undan þjónustuskyldu. Hann sendi biskupi kröfubréf fyrr í þessum mánuði þar sem hann bað um að fá að snúa aftur til starfa, ella freista þess að sækja bætur.
Skírni var vikið frá störfum fyrir brot á starfs- og siðareglum er hann fjallaði um málefni sóknarbarns í viðtali við Vísir.is þann 11. apríl síðastliðinn. Sakaði Skírnir konu, sem nýlega var sökuð um skjalafals í bakvarðarsveit á hjúkrunarheimili í Bolungarvík, um að hafa beitt svikum að fá fjárhagsaðstoð úr líknarsjóði Lágafellskirkju þegar hann var prestur þar árið 2013.
Í kröfubréfi Skírnis kvaðst hann iðrast þess að hafa brotið trúnað gagnvart kirkjunni og skjólstæðingi sínum. „Þetta var fljótfærni og gert í framhaldi af meinlausri fyrirspurn, ég las ekki yfir próförk fréttarinnar sem svo birtist og ég áttaði mig um seinan á að þetta væri alvarlegt mál.“
Í Fréttablaðinu í dag segir lögmaður Skírnis, Sigurður Kári Kristjánsson, að málið sé til skoðunar.
„Það er til skoðunar hvort það verði þjóðkirkjan eða hvort biskupi verði stefnt persónulega eða hvort þeim verður stefnt „in solidum“,“ segir Sigurður.
Að óbreyttu mun Skírnir njóta óskertra launa út skipunartímann sem mun vera til 1. desember næstkomandi.