Björk Jakobsdóttir, Selma Björnsdóttir og Salka Sól Eyfeld segjast allar vera með kvíða en þær ræða málin í helgarviðtali Fréttablaðsins í dag þar sem þær stefna á að frumsýna nýja leiksýninguna „Bíddu bara,“ verk um raunveruleika íslenskra kvenna. Kvíði þeirra birtist á margvísan hátt.
„Ég er með ríðukvíða,“ segir Björk til að mynda í viðtalinu.
„Það eru allir á Íslandi að gera það svo mikið og mér finnst við hjónin bara ekki vera að standa okkur nægilega vel á því sviði. Svo er ég líka hestamanneskja og er alltaf með kvíða yfir því að ríða ekki nægilega mikið út. Svo þetta er tvíþættur ríðukvíði,“ segir Björk enn fremur.
Þá segir Selma að hennar kvíði sé margskonar. „Ég er með afkomukvíða, frammistöðukvíða, félagskvíðaröskun, aðskilnaðarkvíða, löggukvíða og bara alls konar kvíða,“ segir Selma.
Salka er síðan að eigin sögn algjör kvíðabolti. „Það þarf lítið til að koma mér þangað. En ég er alltaf að ná betri stjórn á honum og læra inn á hann. Hann getur poppað upp á órökréttum tímum og þá býst maður við því versta.“
Í verkinu deila þær persónulegum reynslum en Selma segir tilurðina að leikritinu í raun hafa verið „marínerandi kvíðakeis.“
Þá viðurkennir Björk að þó að hún nefni ríðukvíða þar sem það sé fyndnasti kvíðinn og ekki endilega dagsannur. „Þó að verkið sé byggt á okkur erum við óhræddar við að ýkja og ljúga helling.“
„Lífskvíði, dauðakvíði og hamfarakvíði. Svo hefur Covid gert það að verkum að maður hefur fengið sjúkdómakvíða og afkomukvíða,“ segir Selma í kjölfarið. „Við erum búnar að missa vinnurnar endalaust og aftur og aftur og aftur. Það hefur bara bætt á mann kvíða. Ég byrjaði til að mynda á að bæta á mig sex kílóum og missti þau svo aftur. Þetta er allt kvíðatengt, fyrst borða ég tilfinningar mínar og missi svo matarlystina. Þó svo við séum að gera grín af þessu er þetta dauðans alvara.“
Björk bætir þá við að það sé mikilvægt að tala um kvíða, ekki síst vegna komu samfélagsmiðla þar sem allir virðast hamingjusamir. „Þarf maður að sjá fólk með kokteilglas í Bláa lóninu á mánudagsmorgni? Er það akkúrat það sem maður þarf á þeirri stundu?“
Viðtalið í heild sinni má finna hér.