Segist hafa verið refsað fyrir að vera með stæla í þingflokknum

Brynjar Níelsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins og nefndarmaður í stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd Alþingis, gefur lítið fyrir nefndarsetuna og líkir henni helst við afplánunarúrræði.

„Ef menn eru ekki til friðs og með stæla í þingflokkum er beitt margs konar refsingum. Sumar eru vægar sem hægt er að afbera sæmilega en aðrar þyngri og jafnvel óbærilegar. Þyngsta refsingin, og sú sem oftast er hótað að beita þegar mikið liggur við, er að vera settur í stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd þingsins undir formennsku helstu spekinga í mannréttindafræðum úr hópi stjórnarandstæðinga,“ segir Brynjar í færslu á Facebook-síðu sinni en hann er ekki síður þekktur fyrir háðsleg skrif sín og stormasamt samband sitt við ristavélar.

Vísir hafði eftir Brynjari í dag að hann væri hættur að mæta á fundi í stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd. Hann sagði fjarveruna eiga sér langan aðdraganda og að hann hafi gert athugasemdir við nefndarstörfin.

„Ég hef einfaldlega bara sagt að ég er ekki til í að taka þátt í því sem ég kalla leikþætti og sýndarmennsku í nefndinni,“ sagði Brynjar við Vísi.

Hann heldur áfram í Facebook-færslu sinni og segir það mjög algengt að menn sem hafi verið dæmdir til þungra refsinga komi sér undan afplánun.

„Flótti er þekkt úrræði og hafa verið gerðar margar bíómyndir um flótta. Annar möguleiki er bara að mæta ekki í afplánun, sem stundum er kallað skróp. Sjálfur hef ég beitt skróp aðferðinni en ég vissi ekki fyrr en nýlega að það flokkast undir einelti.“

Ef menn eru ekki til friðs og með stæla í þingflokkum er beitt margs konar refsingum. Sumar eru vægar sem hægt er að...

Posted by Brynjar Níelsson on Tuesday, November 24, 2020