Segir stjórnmálamenn ganga erinda kvótagreifa

Örn Bárður Jónsson, fyrrverandi prestur í Neskirkju, fór ekki mjúkum orðum um „þjófþingið“ eins og hann kaus að kalla þjóðþingið í predikun sinni í Breiðholtskirkju í morgun. Í messunni gagnrýndi hann stjórnvöld fyrir að láta gjafakvótakerfið viðgangast og furðaði sig á nýlegum eigandaskiptum Samherja, þar sem börn stofnenda erfðu stóran hluta fyrirtækisins.

Örn sagði illa komið fyrir þjóðinni ef gjafakvótakerfi fengi að viðgangast á komandi árum og taldi upp fjölda ástæða þess.

„Nýjasta dæmið er svonefndur fyrirframgreiddur arfur útgerðarmanna nokkurra sem líta á sig sem eigendur sem alls þess sem hjá þeim er bókfært og ætla að arfleiða börnin sín að eign þjóðarinnar sem hefur slæðst inn í bókhaldið, syndandi fiskinn í sjónum.“

Nýlega erfðu börn stofnenda Samherja stóran hlut í fyrirtækinu.
Fréttablaðið/Ernir

Þingið standi ekki undir nafni

Ljóst væri að þörf væri á kvótakerfi til að stjórna fiskveiðum en að sama skapi skýrt að ekki væri rétt farið að. „Það að Alþingi skuli ekki hafa stöðvað þessa ósvinnu og látið óréttinn viðgangast, framsalið og eignfærsluna í bókhaldinu um árabil, gerir það að verkum að þjóðþingið stendur vart undir nafni sem slíkt,“ sagði Örn í messu eldri borgara.

„Ég hef áður sagt að ég freistist til að skipta út bókstafnum ð úr orðinu í þjóðþing og setja f í staðinn fyrir ð.“

Nóg komið af hártogunum

Örn ítrekaði að nauðsynlegt væri að halda í ákvæði stjórnlagaráðs um þjóðareign á auðlindum en ekki útvatna það. „Nú er mál að hártogunum stjórnmálamanna sem ganga erinda kvótagreifanna linni og kominn tími til að Alþingismenn þekki sinn vitjunartíma, að þjóðþingið standi undir nafni.“

Fleiri fréttir