Alexandra Briem, borgarfulltrúi Pírata og varamaður í forsætisnefnd, segir Mörtu Guðjónsdóttur, borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins, hafa farið með rangt mál þegar hún ræddi við mbl.is í gær en Marta sagði að allir flokkar í borgarstjórn hafi verið sammála um að Dóra Björt hafi gengið of langt með ummælum sínum um Eyþór Arnalds á borgarstjórnarfundi þann 15. september.
Greint var frá því í gær að í bókun forsætisnefndar hafi komið fram að mikilvægt væri að siðareglur borgarstjórnar séu virtar og að borgarfulltrúar gæti sanngirni í sínum málaflutningi en fulltrúar Sjálfstæðisflokks, Samfylkingarinnar, Viðreisnar, Pírata, Vinstri grænna og Sósíalistaflokks Íslands lýstu þar yfir vilja til að stuðla að bættu vinnuumhverfi í borgarstjórn.
„Það má túlka bókun forsætisnefndar svo að nefndin sé sammála um það að fulltrúi Pírata hafi gengið of langt með ummælum sínum um Eyþór,“ sagði Marta í samtali við mbl.is í gær og sagði hún að það vakti athygli að Alexandra Briem, flokkssystir Dóru, hafi skrifað undir bókunina.
Sjá einnig: Saka Dóru um „alvarleg, óviðeigandi og órökstudd brigsl og dylgjur“ í garð Eyþórs
Alexandra greinir þó frá því á Facebook síðu sinni að bókunin hafi verið almenns eðlis þar sem allir borgarfulltrúar voru hvattir til að virða siðareglur og gæta orða sinna. „Aldrei hef ég samþykkt að Dóra Björt hafi gengið of langt eða að spurningin hafi ekki átt rétt á sér,“ segir Alexandra og vísar til þess að harkan sé oft mikil á borgarstjórnarfundum. Þá hafi fulltrúar minnihlutans einnig gengið hart fram síðustu ár.
„Marta brýtur hér gróflega gegn þeirri sátt sem náðist um bókun á fundinum, með því að segja opinberlega að merking bókunarinnar sé önnur en var lögð í hana, eins og henni er full kunnugt um og halda fram að ég taki undir eitthvað sem ég tók aldrei undir,“ segir Alexandra enn fremur en hún segir augljóst að ekkert hafi vakið fyrir fulltrúum Sjálfstæðisflokksins með bókuninni annað en að „grafa undan sendiboðanum“ sem benti á meinta spillingu Eyþórs.
„Það sannast því enn eina ferðina að ekki er hægt að vinna með Sjálfstæðisflokknum. Það er ekki einu sinni hægt að vera með þeim í almennri bókun um bætt samskipti, áður en dagurinn er liðinn eru þau gengin á bak orða sinna.“