Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, skýtur föstum skotum að Halldóri Benjamín Þorbergssyni, formanni Samtaka atvinnulífsins í aðsendri grein á vef Fréttablaðsins, fyrir ummæli hans um Lífskjarasamningana og forsendubrest sem kalli á uppsögn samningsins.
Samtökin telja forsendur Lífskjarasamningsins brostnar og hafa minnt á að heimild sé til að segja upp kjarasamningum á almennum vinnumarkaði um mánaðamót komi verkalýðshreyfingin ekki til móts við atvinnulífið.
Í grein sinni á vef Fréttablaðsins segir Sólveig að Halldór sé vindhani án viðskiptavits. „Ég lýsi miklum efasemdum um að uppsögn kjarasamninga á þeim fölsku forsendum sem málflutningur SA byggir á fái staðist. Ég tel rétt að skoða að slíkri uppsögn, komi til hennar, verði vísað til Félagsdóms þar sem skorið verði úr um lögmæti hennar.“
Hún segir Halldór hafi haldið Lífskjarasamninginn í heiðri líkt og um trúarsetningu væri að ræða. „Nú þegar hóflegar launahækkanir sem skila láglaunafólki mestum ábata henta ekki lengur húsbændum framkvæmdastjórans í stórfyrirtækjum ferðaþjónustunnar hefur hann skyndilega gengið af trúnni.“
Sólveig segir það fyrirslátt hjá SA að nauðsynlegt sé að segja upp almennum kjarasamningum til þess að lækka launakostnað.
„Eini launakostnaðurinn sem aðeins getur lækkað með uppsögn Lífskjarasamningsins er kostnaðurinn við laun þeirra sem starfa á töxtum, laun hinna lægst launuðu. Með hótunum sínum um uppsögn kjarasamninga eru Samtök atvinnulífsins því að hóta sérstakri atlögu gegn lægst launaða fólkinu á íslenskum vinnumarkaði, þeim sem geta ekki lifað af launum sínum samkvæmt opinberum framfærsluviðmiðum.“
Hún segir ljóst að ekki sé hægt að krefja framkvæmdastjóra SA um orðheldni og heiðarlegika, en jarðbundnari dyggðir á borð við viðskiptanef virðist heldur ekki fyrirfinnast hjá honum.
„Kannski er ekki við öðru að búast af lærlingi Boga Nils Bogasonar, forstjórans sem á heiðurinn af milljarðatapi Icelandair á framvirkum eldsneytissamningum. Svo virðist sem ómenntað láglaunafólk sé sleipara í samningagerð en lukkuprinsana úr SA-Icelandair klíkunni grunaði, en í sönnum anda drambsemi og tækifærismennsku leggja þeir nú allt í sölurnar til að koma í veg fyrir að láglaunafólk njóti nokkurs ávaxtar af því,“ skrifar Sólveig.
„Ég hef áður sagt að launahækkanir núgildandi kjarasamninga verða aldrei snertar. Framkvæmdastjóra SA er augljóslega ekki gefin forsjálni, en ég vil þó hvetja hann eindregið til að rýna eftir megni í þá atburði sem kunna að hljótast af því ætli hann sér nú að stela af borðum láglaunafólks þeim krónum sem þeim voru lofaðar og bundnar í samning eftir baráttu og verkfallsaðgerðir.“