„Ég vil segja við Kára Stefánsson og allt hans fólk, þúsund þakkir fyrir ykkar góða framlag til íslensku þjóðarinnar!“ Þetta segir Vilhjálmur Birgisson, formaður Verkalýðsfélagsfélags Akraness.
Viðtal Kastljóss við Kára Stefánsson í gærkvöldi hefur vakið mikla athygli, en þar gagnrýndi Kári meðal annars að Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra hefði ekki minnst á Íslenska erfðagreiningu í þakkarræðu sinni á síðasta upplýsingafundi almannavarna í vikunni.
„Það verður að segjast eins og er að Kári Stefánsson hefur reynst íslensku þjóðinni oft á tíðum afar vel,“ segir Vilhjálmur en Kári gagnrýndi einnig að ekki hafi verið leitað til fyrirtækisins um það hvernig best væri að haga skimunum á Keflavíkurflugvelli eftir að landið opnar þann 15. júní næstkomandi.
„Eins og öll þjóðin veit þá bauð hann og hans starfsfólk til að skima fyrir Kórónuveirunni og nú liggur fyrir að upp undir 80% af öllum skimunum sem áttu sér stað kom frá hans fólki. Það kom fram í þessum Kastljósþætti að kostnaður sem fyrirtækið lagði til við að skima nemur 3 milljörðum,“ segir Vilhjálmur sem bætir við að það sé morgunljóst að án aðkomu Íslenskrar erfðagreiningar hefði ekki tekist eins vel til við að vinna bug á veirunni.
Vilhjálmur bendir á að þetta sé ekki það eina sem Kári Stefánsson hefur gert fyrir íslensku þjóðina. „Íslensk erfðagreining gaf íslensku þjóðinni jáeindaskanna til notkunar á Landspítalanum og ef ég man rétt þá nam sá kostnaður á sínum tíma um 1 milljarði.“
Lokaorð Vilhjálms eru eflaust orð sem margir geta tekið undir: „Ég vil segja við Kára Stefánsson og allt hans fólk, þúsund þakkir fyrir ykkar góða framlag til íslensku þjóðarinnar!“