Salka Sól gagnrýnir kynjahlutfall hátíðarinnar Rokk í Reykjavík sem fram fer í Kaplakrika í september. Í tísti sem hún birti á Twitter ber hún fram spurninguna „….meira svona Cock í Reykjavík?“ og vísar þá til þeirrar staðreyndar að á auglýsingu fyrir hátíðina er engin kona sjáanleg.
...meira svona Cock í Reykjavík? pic.twitter.com/4Pk8hh9bhh
— Salka Sól Eyfeld (@salkadelasol) July 15, 2022
Rokk í Reykjavík eru tónleikar sem haldnir verða í Kaplakrika segja tónleikahaldarar að um „stærstu rokktónleika Íslandssögunnar“ sé að ræða.
Á lista yfir þær hljómsveitir sem koma fram má sjá að eitthvað virðist til í gagnrýni Sölku þar sem nánast allar þessar hljómsveitir eru skipaðar einvörðungu karlmönnum. En þær eru:
SKÁLMÖLD
DIMMA
HATARI
BRAIN POLICE
DR. SPOCK ÁSAMT SÉRSTÖKUM GESTI
SÓLSTAFIR
ENSÍMI
ROCK PAPER SISTER
FOREIGN MONKEYS
EINAR VILBERG & HLJÓMSVEIT
MOLDA