Sautján ný COVID-19 smit greindust hér á landi síðasta sólarhring; þrettán á sýkla- og veirufræðideild Landspítalans og fjögur hjá Íslenskri erfðagreiningu. Þetta er mesti fjöldi smita á einum degi síðan þann 9. apríl síðastliðinn en þá greindust 27 smit hér á landi.
Þetta kemur fram í tölum sem eru aðgengilegar á COVID.is. Um þrjú þúsund sýni voru tekin í gær.
Þá greindust þrjú virk smit við landamæraskimun en beðið er eftir mótefnamælingu varðandi fjórða smitið.
Þar kemur fram að 109 einstaklingar séu nú í einangrun og 914 í sóttkví. Góðu fréttirnar eru þó þær að enginn er á sjúkrahúsi.
Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra og embætti landlæknis hafa boðað til upplýsingafundar fyrir fjölmiðla klukkan 14:00 í dag. Þar munu Þórólfur Guðnason, sóttvarnalæknir og Víðir Reynisson, yfirlögregluþjónn fara yfir stöðu mála, varðandi framgang COVID-19 faraldursins hér á landi. Gestur fundarins verður Jóhann Björn Skúlason, yfirmaður smitrakningarteymis almannavarna.