Héraðsdómur Reykjavíkur hefur sakfellt tvo pilta fyrir líkamsárás á bifreiðastæði við verslun Bónus í Spönginni þann 20. desember 2018. Piltarnir voru nýlega 15 ára gamlir þegar árásin var framin.
Í ákæru kemur fram að piltarnir hafi veist að öðrum ungum einstaklingi og slegið hann með krepptum hnefa svo hann féll í jörðina. Í kjölfarið eru þeir sagðir hafa sparkað ítrekað í líkama hans og höfuð en afleiðingar árásarinnar voru þær að fórnarlambið hlaut yfirborðsáverka á höfði, nefi og olnboga, mar á brjóstkassa og yfirborðssár á höfði og andliti. Piltarnir játuðu báðir sök fyrir dómi.
Í niðurstöðu dómsins kemur fram að piltarnir hafi iðrast gjörða sinna og var litið til þess við ákvörðun refsingar. „Þá voru þeir nýlega orðnir fimmtán ára gamlir þegar brotið var drýgt og má álíta vegna æsku þeirra að full refsing sé ónauðsynleg eða skaðleg,“ segir enn fremur.
Til refsiþyngingar var litið til þess að brotið var framið í sameiningu, af nokkrum grófleika og beindist að mikilvægum verndarhagsmunum með tjóni og hættu á tjóni fyrir brotaþola sem var ungur að árum. Þá var litið til þess að óhæfilegur dráttur varð á meðferð málsins sem var piltunum óviðkomandi.
Annar piltanna var dæmdur í 45 daga fangelsi, en dómurinn er skilorðsbundinn til tveggja ára. Sá var sakfelldur í aðskildu máli á síðasta ári og var litið til þess. Ákvörðun um refsingu yfir hinum var frestað skilorðsbundið í tvö ár frá uppsögu dómsins. Piltunum var svo báðum gert að greiða laun verjanda sinna, 250 þúsund krónur hvor.