Sagður brjálaður eftir að hafa fengið fimm símtöl frá Gylfa

Leikmaður Everton er sagður brjálaður eftir að hafa fengið fimm símtöl frá Gylfa Þór Sigurðssyni. Frá þessu greina miðlarn­ir Mirr­or og The Sun.

Breskir miðlar segja að leikmönnum Everton, þar sem Gylfi spilar, hafi verið bannað að eiga í samskiptum við hann eftir að Gylfi var handtekinn í síðustu viku vegna gruns um kynferðisbrot gegn barni. Gerð var húsleit á heimili hans en hann hefur verið látinn laus gegn tryggingu.

Þá hefur verið greint frá því að Gylfi haldi nú til í húsi á vegum Everton þar sem fylgst sé með honum.

Einn leikmaður Everton á að hafa „verið brjálaður yfir því að hafa fengið fimm sím­töl“ frá Gylfa. Leik­menn­irn­ir séu ekki ánægðir með að hafa verið dregn­ir inn í málið og vilja að hann verði nafngreindur.