Sagði ekki jafn hátt talað um jafnrétti þegar hallar á karlmenn

Hafdís Hrönn Hafsteinsdóttir þingkona Framsóknarflokksins ræddi jafnrétti kynjanna á þingi í dag. Hún sagði að í dag séu 70 prósent þeirra sem útskrifast úr háskóla konur en að það sé ekki ýkja langt síðan það var öfugt. „…en á þetta ekki að vera jafnt?“ spurði þingkonan svo.

„Rannsóknir varpa ljósi á að stelpum er oftar hrósað í skóla en drengjum og svo má lengi telja. Við sjáum ákveðna mismunun gagnvart ungum drengjum strax í skóla. Þeim er sagt að þeir séu fyrirferðarmiklir, séu of mikið og við stelpur er oftar en ekki sagt: „Æ, passaðu þig á strákunum“,“ sagði Hafdís Hrönn og að þetta væri ekki uppbyggilegt fyrir stráka.

Hún sagði að einnig heyrðist æ meira af karlmönnum sem ekki finna sig í samskiptum við konur og að þeir hræðist að stíga óviljandi yfir mörk.

„Má vera að ákveðin óvissa og gremja ungra karlmanna sé að skila sér í aukinni ofbeldishegðun og öfgahyggju? Ég tel þetta ekki vera samfélag sem okkur langar að búa í. Við þurfum að taka betur utan um unga karlmenn og beita fræðslu. Ég fagna því að staða kvenna sé betri en það verður að varast að pendúllinn sveiflist alla leið,“ sagði Hafdís Hrönn á þingi og spurði hvort að það væri talað jafn hátt um jafnrétti þegar það hallar á karlmenn.

„Við þurfum að opna augun, fræða og grípa til aðgerða svo við getum náð betra jafnvægi í samskiptum kynjanna. Svo þurfum við að spyrja okkur þessarar grundvallarspurningar: Í hvernig samfélagi viljum við búa?“

Fleiri fréttir