Saga hætt sem lögmaður Sölva: „Ég fór út fyrir verksvið mitt sem lögmaður“

Saga Ýrr Jónsdóttir lögmaður er hætt sem lögmaður fjölmiðlamannsins Sölva Tryggvasonar. Þetta kemur fram í yfirlýsingu sem send hefur verið fjölmiðlum.

„Á sunnudaginn fyrir viku síðan leitaði Sölvi Tryggvason til mín og ég tók að mér afmarkað mál fyrir hans hönd sem lögmaður. Á fimmtudag fékk ég svo símtal þar sem mér var tilkynnt að önnur kvennanna sem kærði Sölva á miðvikudagskvöld er einn umbjóðenda minna í hópmálsókn sem hefur verið í gangi í nokkur ár og er enn í rekstri fyrir dómstólum. Ég viðurkenni fúslega að mér varð brugðið við þessar upplýsingar en við þá konu hef ég átt í góðum og miklum samskiptum sem lögmaður undir rekstri hópmálsóknarinnar. Vegna þessa augljósa hagsmunaáreksturs er mér ekki annað fært en að segja mig frá máli Sölva og held því áfram að vinna að hagsmunum umræddrar konu í hópmálsókninni í góðu samráði við hana. Sölva sjálfan hef ég látið vita af þessari ákvörðun minni og ég óska honum velfarnaðar í sínum verkefnum.“

Í yfirlýsingunni segir Saga að undanfarin vika hafi verið mjög lærdómsrík.

„Ég hef áttað mig á að ég fór út fyrir verksvið mitt sem lögmaður, lét tilleiðast og kom mér í aðstæður sem ég geri mér núna grein fyrir að ég hefði aldrei átt að vera í. Eftir að hafa horft á tíðrætt podcast sem fór í loftið í síðustu viku er fátt annað í brjósti mér en að ég átta mig á að orð mín þar hafa sært einstaklinga og á því langar mig að biðja einlæglega afsökunar. Með því er ég alls ekki að taka afstöðu til sakleysis eða sektar Sölva heldur einungis að taka ábyrgð á minni framgöngu.“