Rauð við­vörun á Aust­fjörðum: Steinar og grjót geti fokið

Veður­stofa Ís­lands hefur sett á rauða við­vörun á Aust­fjörðum á morgun. Víða um land er búist við slæmu veðri á næsta sólar­hring, en verst á það að vera á sunnan­verðum Aust­fjörðum, að sögn veður­fræðings.

„Það verður alveg mjög slæmt veðrið á sunnan­verðum Aust­fjörðum sér­­stak­­lega en slæmt á öllum Aust­fjörðum,“ segir Ei­­ríkur Örn Jóhannes­­son, veður­­fræðingur hjá Veður­­stofu Ís­lands.

Appel­sínu­gul veður­við­vörun hefur verið gefin út á Norður­landi eystra, Austur­landi og Suð­austur­landi. „Veðrið verður kannski verst á Suð­austur­landi af þessum þremur appel­sínu­gulu svæðum,“ segir Ei­­ríkur og bætir við að Aust­­firðir skeri sig út, en þar er spáð 25 til 33 metrum á sekúndu. „Þá er maður kominn í ofsa­veður.“

Þá mælir Ei­­ríkur með því að fólk haldi sig inni í svona veðri. „Það er ekkert ferða­veður. Steinar og grjót er farið að fjúka og það getur verið hættu­­legt. Svo er það þetta hefð­bundna, það þarf að tryggja lausa­muni, allt sem er laust fýkur í svona veðri.“ Hann bætir við að það sama eigi við Austur­land og Suður­land.