Björn Leví Gunnarsson, þingmaður Pírata, og Kolbeinn Óttarsson Proppé, þingmaður Vinstri grænna, hafa átt nokkur orðaskipti að undanförnu eftir að frumvarp Pírata um afglæpavæðingu neysluskammta fíkniefna var fellt í atkvæðagreiðslu á þinginu í vikunni.
Kolbeinn sagði í grein á Vísi í gær að nokkuð hafi vantað upp á að frumvarp Pírata væri fullklárað. Þá sagði hann að Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra ætlaði sér að leggja fram frumvarp um sama mál en nauðsynlegt væri að vinna frumvarpið betur.
Björn Leví vandaði Kolbeini ekki kveðjurnar í færslu á Facebook í gær og sagði:
„Hér er fyrirsögn fyrir þig: fokkaðu þér. Við vildum atkvæðagreiðslu um málið þar sem þingmenn geta beitt sannfæringu sinni. Þessi útúrsnúningur þinn er jafn ömurlegur og þessi málflutningur þinn í málinu.“
Í færslu á Facebook-síðu sinni í gærkvöldi dró Björn Leví aðeins í land.
„Ég og Kolbeinn höfum rifist dálítið að undanförnu. Hann heldur því til dæmis fram að ég geti ekki viðurkennt þegar ég hef rangt fyrir mér. Þrátt fyrir nokkur dæmi um slíkt,“ segir hann og heldur áfram:
„Það var rangt af mér að ýja að því að hann ætti að fokka sér. Þrátt fyrir að ég sagði það ekki beint, þá er það líka rangt hjá mér að láta það líta þannig út. Þannig að í öllum túlkunum þessarar framsetningar, þá er það rangt. Ef einhver efast um hvað ég meina, algerlega án allrar kaldhæðni þá var þetta jafn rangt hjá mér og greinin hans var um afglæpavæðingarmálið.“