Förðunarfræðingurinn og langhlauparinn Rakel María Hjaltadóttir hefur tjáð sig um samband sitt við Ingólf Þórarinsson, betur þekktan sem Ingó veðurguð, en þau voru par fyrir um það bil tveimur árum.
Hún fjallar um málið í viðtali við Vikuna, og talar meðal annars um það þegar hún vaknaði síðasta sumar og sá fréttir um að Ingó hafi verið sakaður um kynferðisbrot.
„Í fyrrasumar, um það bil ári eftir að við hættum saman, vaknaði ég á sunnudagsmorgni og leit á símann minn og þá voru þessar fréttir um hann bara alls staðar. Það var eins og einhver hefði kýlt mig í magann. Ég fékk taugaáfall, grét og grét og náði varla andanum … Þetta var gjörsamlega hræðilegt,“
Rakel segir síðan frá sambandi sínu við Ingó. Hún segir að það hafi stundum verið stormasamt, en þrátt fyrir bresti Ingós trúi hún því að hann sé góður maður.
„Auðvitað hafði alls konar gengið á í okkar sambandi og það var stormasamt á tímabili en ég hafði borið fullt traust til hans og þess vegna var auðvitað erfitt og sárt að heyra af óheiðarleika sem átti sér stað í sambandinu. Við áttum margar góðar stundir saman en vorum samt mikið hvort í sínu lagi því við vorum svakalega ólík og lifðum dálítið hvort okkar lífi; hann að gigga og djamma og ég að hlaupa eða vinna í mínu. Við byrjuðum saman þegar ég var tvítug og hann 27 ára og mér þykir alltaf vænt um hann, því við áttum eitthvað sérstakt. Þrátt fyrir þá bresti sem hann hefur þá er hann góður maður.“