Ragnhildur Steinunn leyst undan skyldum hjá RÚV

Ragnhildur Steinunn Jónsdóttir, fjölmiðlakona hefur óskað eftir því að hún verði leyst undan skildum sínum á RÚV, en hún hefur starfað sem aðstoðardagskrárstjóri sjónvarps RÚV í fjögur ár. Frá þessu greinir hún á Facebook í dag.

Hún segir að árin í þessu starfi hafi verið lærdómsrík, krefjandi og skemmtileg, en að nú vilji hún vinna að þáttagerð án þess að sinna öðrum dagskrártengdum málum. Hún segist því ætla að halda áfram í dagskrárgerð hjá RÚV.

„Kæru vinir, eftir fjögur gefandi ár í starfi aðstoðardagskrárstjóra sjónvarps hjá RÚV hef ég óskað eftir að vera leyst undan þeim skyldum. Þetta hefur verið lærdómsríkur, krefjandi og skemmtilegur tími. Takk fyrir mig Það er öllum hollt að staldra við endrum og eins, endurmeta stöðuna, gildin sín og finna hvar hjartað slær.
Á þessum tímapunkti er löngunin til að koma beint að þáttagerð og framleiðslu efnis ríkari en að sinna alhliða dagskrártengdum málefnum. Ég ætla því að demba mér aftur af fullum krafti í dagskrárgerð hjá RÚV. Hlakka til að leggja áfram mitt af mörkum til að búa til fjölbreytt og gott sjónvarpsefni Sjáumst!“