Landsmenn halda nú upp á frídag verslunarmanna og hafa eflaust margir þakkað fyrir að fá auka frídag til að njóta með sínum nánustu.
Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR, hvetur fólk til að sýna virðingu í verki með því að forðast að sinna verslun og þjónustu á þessum sögufræga degi.
Þá beri að gjalda varhug við sértilboðum sem fyrirtæki auglýsi á þessum mikilvæga frídegi verslunarfólks.
Er verslunarmannahelgin nú víða haldin með breyttu sniði vegna heimsfaraldurs kórónaveiru en ljóst er að fjöldi fólks er á faraldsfæti þessa stærstu ferðahelgi ársins.
Í grein á vef VR skrifar Ragnar að mikil breyting hafi orðið á verslunar- og skrifstofustörfum undarnfarin ár. Þá hafi áðurnefndur heimsfaraldur fært með sér stóra áskorun fyrir fólk í verslunar- og þjónustustörfum sem hann segir undirstrika mikilvægi þeirra starfa.
„Það þarf vart að teikna upp þær sviðsmyndir sem hefðu getað skapast í okkar samfélagi ef ekki hefði notið við framlínufólks í verslun og þjónustu. Það er enginn vafi í mínum huga að framlínufólk okkar verslunarmanna er lífæð samfélagsins.“
Því beri að hrósa og þakka því fólki sem staðið hafi vaktina og lagt sig í aukna smihættu til að tryggja aðgang að nauðsynjavörum og þjónustu.