Ragnar Freyr Ingvarsson, fyrrverandi yfirlæknir Covid-göngudeildarinnar, segir tímabært að Íslendingar endurhugsi aðgerðir sínar gagnvat veirunni.
„Þær takmarkanir sem lagðar eru á - munu ólíklega skila tilætluðum árangri, enda er faraldurinn mestur meðal barna, unglinga og ungra fullorðinna í menntaskóla og háskóla. Og líklega mun útbreiddari en við höldum,“ skrifar Ragnar.
„Víða erlendis verið að endurskoða nálgun í ljósi breyttra aðstæðna. Víða í kringum okkur er verið að skilgreina viðbrögð upp á nýtt í ljósi nýrra forsendna, m.a. á hinum Norðurlöndunum. Verið er að endurhugsa skimanir, sóttkví, viðbrögð almennings og á heilbrigðisstofnunum. Tímabært er að við gerum slíkt hið sama,“ bætir hann við.
Hann segir Ómíkron-afbrigðið hafa náð heimsyfirráðum á sex vikum og gerbreytt öllu. Covid er gjörólíkur sjúkdómur en við þekktum fyrir nokkrum vikum.
„Mun fleiri smitast, en mun færri leggjast inn á sjúkrahús. Færri leggjast inn vegna COVID, þó nokkrir leggjast inn með COVID. Sárafáir enda á gjörgæslu. Innlagnartíðni vegna Omikron á Íslandi er lægri en í Danmörku og margfalt lægri en af Delta afbrigði veirunnar.
Og þetta er ekki bara tilfinning, þetta er stutt af rannsóknum,“ skrifar Ragnar.
Fyrir meira en viku síðan birtist í fjölmiðlum niðurstöður spálíkans sem hefur verið lagt til grundvallar stórra ákvarðana. Kallað var eftir útgöngubanni í samfélaginu. Á föstudag voru settar fram nýjar takmarkanir byggðar á þessari spá. Ragnar birtir mynd af spánni og segir Ísland vera fyrir neðan bjartsýnustu spár.