Grínistinn Pétur Jóhann Sigfússon segist ekki hafa ætlað að særa neinn eftir að myndband af honum fór sem eldur í sinu.
Sema Erla Serdar, stjórnmála- og Evrópufræðingur og baráttukona fyrir mannréttindum, deildi myndbandinu á Facebook og sakaði Pétur, Björn Braga og Egil Einarsson fyrir rasisma en í myndbandinu, sem Björn Bragi birti á Snapchat, má sjá þá skemmta sér konunglega yfir uppátækinu.
„Þessir gaurar eru stórkostlegt dæmi um forréttindablindu hvíta, miðaldra karlmannsins sem trúir því virkilega að það séu engir fordómar eða rasismi á Íslandi,“ skrifaði Sema á Facebook og bætti því við að þrátt fyrir að henni þætti óþægilegt að dreifa myndbandinu árfam væri það nauðsynlegt.
Málið vakti mikla reiði og hafa fjölmargir gagnrýnt þremenningana fyrir uppátækið. Þó voru ekki allir sem beindu sinni reiði að Pétri og félögum heldur fékk Sema í kjölfarið morðhótanir gegn sér og fjölskyldu sinni.
Sjá einnig: Semu borist morðhótanir í kjölfar gagnrýni á Pétur Jóhann, Björn Braga og Gillz
Í færslunni sem Pétur birtir á Facebook í dag segir hann að hann sjái eftir málinu. „Elsku þið öll. Myndband sem tekið var af mér í einkasamkvæmi um síðustu helgi hefur farið sem eldur í sinu á samfélagsmiðlum,“ segir Pétur.
„Ég biðst einlægrar afsökunar á framgöngu minni í þessu myndbandi og þykir leitt að hafa sært. Það var ekki ætlun mín að særa. Það er alveg ljóst að ég hef lært af þessu máli og þeirri umræðu sem af því hlaust.“