Leiðsögumaðurinn Páll Ásgeir Ásgeirsson komst hjá því að borga veggjald í Vaðlaheiðargöng. Þetta upplýsir hann á Facebook.
Það er tiltölulega einfalt að borga í Vaðlaheiðargöng. Byrja á því að stofna aðgang á veggjald.is og síðan gjaldfærist skjálfkrafa af greiðslukorti í hvert skiptið sem ekið er um göngin. Fyrir venjulegt ökutæki kostar stök ferð 1.500 krónur.
„Ég er með svaðalegt samviskubit,“ segir hann. Upplýsir hann svo hvernig hann fór að því:
„Ég átti um tíma amerískan trukk og númerið á honum var einhvern veginn þannig staðsett að ég borgaði aldrei neitt í þessi göng.“