Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, ráðherra ferðaþjónustu, iðnaðar og nýsköpunar óttast fjöldagjaldþrot í ferðaþjónustu á næstu mánuðum, enda muni fjölmörg fyrirtæki í greininni ekki ráða við tekjuleysi í langan tíma, jafnvel þótt ríkisvaldið komi þeim til aðstoðar. Hún er gestur Sigmundar Ernis í fréttaþættinum 21 á Hringbraut í kvöld.
Staðan sé ef til vill alvarlegri hér á landi en víða annars staðar, hér reiði ferðaþjónustan sig nánast alveg á erlent ferðafólk, en tölur styðja mál hennar: 10 prósent af ferðafólki á Íslandi er íslenskt, 50 prósent af ferðafólki í Noregi er norskt, 85% af ferðafólki í Þýskalandi er þýskt, svo dæmi sé tekið. Og því segir ráðherra að áfalli ferðaþjónustunnar sé hlutfallslega meira hér á landi en á meginlandi Evrópu. Við þessu þurfi að bregðast með því að horfa helst til þeirra markaða sem geta gefið eitthvað af sér nú um stundir, svo sem Norðurlandanna og ef til vill Asíu, en síður til Bandaríkjanna og Suður-Evrópu, þar sem kórónaveiran mun væntanlega hafa langvarandi áhrif. Markaðsstarfið þurfi því að hugsa upp á nýtt, en vel að merkja; viðspyrnan geti orðið sterk, segir ráðherra, víðernið og fámennið hér á landi hjálpi skipti þar líklega sköpum í vali fólks á áfangastað sem muni forðast fjölmennið á næstu árum – og meginsvarið sé því þetta: Ferðaþjónusta verði áfram ein helsta atvinnugrein Íslendinga.
Þórdís Kolbrún segir mikilvægt að svara efnahagsvandanum með nýjum og breyttum áherslu í atvinnulífinu. Nýsköpun verði að gera að meginstoð í íslensku efnahagslífi og þar megi engan tíma missa – og raforkuna verði að nota í auknum mæli til matvælaframleiðslu, en á því sviði verði að sækja hratt fram og þar séu tækifærin mýmörg. En landsmenn komist út úr þessu, kveðst hún sannfærð um, þótt nú um stundir súrni sviðsmyndirnar á hverjum degi, þökk sé sterkum innviðum og afar góðri stöðu ríkissjóðs, sem margar aðrar þjóðir státi ekki af á þessari úrslitastundu, en, bætir hún við, það hefði samt ekki sakað að eiga þjóðarsjóðinn sem oft hafi verið talað um – og kannski átti stjórnmálin sig á því núna.