Ó­trú­legar myndir: Allt á floti í há­skólanum – Svaka­legt tjón

Mikið tjón varð í Há­skóla Ís­lands í nótt þegar kalda­vatns­lögn í Vestur­bæ Reykja­víkur gaf sig með þeim af­leiðingum að allt fór á flot í byggingum skólans.

Öll starf­semi skólans á Há­skóla­torgi, í Gimli, Lög­bergi, Árna­garði og í Aðal­byggingu mun liggja niðri að minnsta kosti til há­degis í dag vegna lekans.

Slökkvi­liðs­menn hafa unnið hörðum höndum að því að hreinsa lekann í nótt, en ljóst er að enn er mikið verk fyrir höndum eins og sást ber­lega þegar ljós­myndara Frétta­blaðsins bar að garði í morgun.

Fréttablaðið/Valli
Fréttablaðið/Valli
Fréttablaðið/Valli
Fréttablaðið/Valgarður Gíslason
Fréttblaðið/ Valgarður Gíslason
Fréttablaðið/Valli
Fréttablaðið/Valli