Ótrúleg tilviljun virðist hafa átt sér stað á sundlaugarbakkanum í Napolí, en þar voru Íslendingar sem vissu ekki af hvoru öðru.
Kona nokkur greindi frá því á Twitter að hún hafi verið við sundlaugarbakkann að ræða við kærastan sinn um ansi persónuleg málefni, annars vegar fjármál og hins vegar eitthvað kynferðislegt.
Hún bjóst við því að fólkið í kringum þau skyldi ekki hvað hún væri að segja, en komst svo að því að maðurinn fyrir aftan hana var að lesa íslenska bók.
„Elska þegar maður er búinn að vera að tala íslensku við kæró á sundlaugarbakkanum í napoli í klukkutíma um peningamál og greddutengd málefni og fattar svo að það er manneskja að lesa bókina “leyndarmálið” á íslensku tveimur bekkjum frá þér,“
Ekki nóg með þetta, heldur greindi maðurinn jafnframt frá sinni frásögn á Twitter. Og virðist hafa verið algjörlega ómeðvitaður um frásögn konunnar.
Hann virðist hafa heyrt allt sem fór á milli konunnar og kærasta hennar, og segist aldrei hafa liðið eins illa yfir því að kunna íslensku áður.
„Ég sat á sundlaugarbakkanum hérna á Ítalíu og las bók. Heyri svo í pari byrja að ræða á íslensku um fjármálin sín og önnur enn persónulegri málefni, væntanlega haldandi að enginn skilji sig. Veit ekki hvort mér hafi áður liðið svona illa yfir því að skilja íslensku.“