Óþolandi íbúi í Breiðholti eftir 21 dag í sóttkví: Sjáðu myndbandið – „Þú verður alltaf að taka nótu!“

Myndskeið þar sem tekin hafa verið saman nokkur brot úr Fóstbræðrum þar sem sjá má nágranna sem lætur ekkert fram hjá sér fara og er afar afskiptasamur hefur gengið í gegnum endurnýjum lífdaga nú þegar kórónaveiran herjar á heimsbyggðina. Er titillinn á þessari samantekt 21 dagur í sóttkví. Þá segja sumir sem horft hafa á myndskeiðið að stutt sé í að þeir fari að haga sér með svipuðum hætti.

Sandra Birgisdóttir sem deilir myndskeiðinu spyr: „Er nokkuð svona fólk í ykkar nágrenni?“