Pistill Önnu Karenar Jónsdóttur, hagfræðings, um rasisma, affjármögnun lögreglu og Black Lives Matter hreyfinguna, sem birtist í Morgunblaðinu í morgun hefur vakið gríðarlega mikla athygli á samfélagsmiðlum í morgun. Tjá ýmsir þjóðþekktir aðilar sig um pistilinn og gagnrýna efnislegt innihald hans.
Í pistlinum, sem ber heitið „Rasismi og affjármögnun lögreglu“ fer Anna hörðum orðum um Black Lives Matter hreyfinguna og segir það liggja í augum uppi að hreyfingin sé til þess fallin að eyðileggja vestræn gildi og vestræn samfélög.
Þá gerir Anna Karen lítið úr fjölda þeirra svartra einstaklinga sem myrtir eru af lögreglunni í Bandaríkjunum. „Þrátt fyrir að vera bara 13,4% þjóðinnar þá eru svartir í langflestum tilfellum yfirgnæfandi meirihluti afbrotamanna,“ skrifar Anna.
Meðlimir kommúnistaflokks Kína stuðningsmenn og George Soros
Hún spyr hvort fólk í fátækrahverfum sé ekki jafnt ábyrgt gjörða sinna og aðrir. „Hvað með kynferðisbrotaþolendur? Eru þeir síður fórnalömb ef árasarmaðurinn var svartur og af því kerfið heldur honum niðri? Gildir #Metoo ekki um svarta afbrotamenn?“ segir Anna sem segir rasisma langsótta skýringu á fátækt árið 2020.
„Hvíti kynstofninn ber ekki ábyrgð á fjárhagsstöðu svarta mannsins og efnahagsleg staða fólks réttlætir hvorki rán, morð né nauðganir. Sama hvaða kynstofn fremur glæpinn.“
Þá bendir Anna á að meðlimir kommúnistaflokks Kína hafi lýst yfir stuðningi sínum við Black Lives Matter hreyfinguna. Spyr hún hvort fólk hafi gleymt atburðum á torgi hins himneska friðar árið 1989. Hún bendir á að sama fólk og gagnrýni nasista Hitlers styðji hreyfinguna.
Hún fullyrðir þá að fjársterkir aðilar, „elítan“ eins og George Soros, Jeff Bezos og Bill Gates fjármagni hreyfinguna. „Setja má spurningamerki við það af af hverju hvítir milljarðamæringar vilji styðja hreyfingu esm hvetur fólk til að sniðganga þeirra eigin fyrirtæki. Hverra hagsmuna ætli þetta fólk hafi að gæta?“
Segja skrifin „fringe úber rasísk“
Mikil umræða hefur eins og áður segjast myndað um pistilinn á samfélagsmiðlum. Tónlistarmaðurinn Logi Pedro virðist ekki trúa eigin augum.
„Þetta er svo fringe úber rasískt, og í þokkabót illa skrifað, að maður er sannfærður um að þetta sé annaðhvort:
A. gervimanneskj eða B. manneskja sem er að glíma við andlega erfiðleika,“ skrifar Logi.
„Ég er búinn að lesa þá setningu svona 10 sinnum og ég skil ekki neitt. Er það neikvætt fyrir málstað ef fólk sem gagnrýnir nasista Hitlers styður hann? Átti þessi grein að birtast í einhverju öðru blaði eða er hún opinberlega að peppa nasisma?“ spyr Guðmundur Ari, bæjarfulltrúi Samfylkingarinnar á Seltjarnarnesi.
Sigurborg Ósk Haraldsdóttir, borgarfulltrúi Pírata, segist óska þess að Anna Karen sé ekki raunveruleg manneskja.
„Nei ha... Niðurstaðan er þá að BLM er sambærileg nasistum og að svart fólk getur sjálfu sér um kennt. Vá hvað ég óska þess innilega að þetta sé ekki raunveruleg manneskja sem skrifar svona.“
Fleiri ummæli um færsluna má sjá hér að neðan:
Þetta er svo fringe úber rasískt, og í þokkabót illa skrifað, að maður er sannfærður um að þetta sé annaðhvort:
— Logi Pedro (@logipedro101) September 25, 2020
A. gervimanneskja
eða
B. manneskja sem er að glíma við andlega erfiðleika
— dagurbollason (@DagurBollason) September 25, 2020
Ahaha. Þessi Karl Marx reffi. Pabbi hennar er forstjóri Olís OG formaður samtaka verslunar og þjónustu.
— Bergþóra Jónsdóttir (@bergthorajons) September 25, 2020
Einmitt. Hvaða fólk gagnrýnir EKKI nasista Hitlers? Hvernig er þetta bara eitthvað sem einhver segir??
— Hildur ♀ BLM (@hillldur) September 25, 2020
Ef það væri sett [Citation Needed] fyrir aftan allar fullyrðingarnar sem hún setur þarna inn væri þessi grein á tveimur opnum.
— Oddur Gunnarsson! Bauer (@oddurbauer) September 25, 2020
Nei ha... Niðurstaðan er þá að BLM er sambærileg nasistum og að svart fólk getur sjálfu sér um kennt.
— Sigurborg Ósk Haraldsdóttir (@SigurborgOsk) September 25, 2020
Vá hvað ég óska þess innilega að þetta sé ekki raunveruleg manneskja sem skrifar svona.
Ekki það, í grunninn er þessi grein bara að segja það sama og leiðarar Moggans hafa gert lengi, og það var án vafa þess vegna sem hún er birt þarna
— Þorsteinn Vilhjálmss (@kirjalax) September 25, 2020