Ósk og Ingólfur selja erótískt efni á OnlyFans: Fá greitt fyrir að gera ótrúlegustu hluti

Ósk Tryggvadóttir og Ingólfur Valur Þrastarson hafa atvinnu af því að búa til erótískt efni sem þau selja í gegnum vefsíðuna OnlyFans. Ósk og Ingólfur voru gestir Eddu Falak og Fjólu Sigurðardóttur í hlaðvarpsþættinum Eigin konur þar sem þetta kom fram og fjallað er um á vef Smartlandsins.

Ósk og Ingólfur eru ekki í sambandi en búa til erótískt efni saman. Hún er með 320 fylgjendur sem greiða 20 dollara á mánuði en hann er með 160 fylgjendur. Miðað við þetta fær Ósk rúmar 800 þúsund krónur á mánuði en Ingólfur um 400 þúsund.

Nokkuð hefur verið fjallað um OnlyFans að undanförnu en í fréttum Stöðvar 2 í september síðastliðnum kom fram að hátt í tuttugu íslenskar konur selji aðgang að erótískum eða klámfengnum myndum af sér í gegnum síðuna. Ekki liggur fyrir hvað þær eru margar í dag en ólíklegt er að þeim hafi fækkað síðan þá.

Stígamót lýstu af því tilefni yfir áhyggjum af þróuninni því um væri að ræða enn eina birtingarmynd þess að verið sé að selja aðgang að líkama kvenna. Sagði Steinunn Gyðu og Guðjónsdóttir, verkefnastýra hjá Stígamótum, að talsvert margar konur og karlar leiti til samtakanna árlega eftir að hafa verið í vændisiðnaði eða klámi.

Í hlaðvarpsþættinum sem Smartland fjallar um kemur fram að fólk borgi einnig fyrir einstök myndbönd. Þannig lýsti Ósk því yfir að það mesta sem hún hafi fengið í einu hafi verið 500 dollarar, rúmar 60 þúsund krónur, frá manni sem bað hana um að pissa fyrir framan myndavélina. Má segja að þær Edda og Fjóla hafi misst andlitið þegar hún varpaði þessu fram.

„Hann bað mig um að vera nakinn og pissa. Ég bara fór á klósettið, þurfti að pissa og ég tók myndavélina, sýndi að ég var að pissa og fór svo bara með hana neðar,“ sagði hún meðal annars.