Orð dagsins á Víðir Reynisson yfirlögregluþjón. Mikið hefur mætt á Víði og hefur hann á blaðamannafundum reynt að halda almenningi upplýstum um stöðu mála vegna kórónaveirunnar. Víðir á orð dagsins og lét hann þau falla í lok fundarins í dag. Var þeim beint til íslensku þjóðarinnar. Orð dagsins eru svohljóðandi:
„Höldum áfram að vera góð við hvort annað. Það er mjög sérstakt en við höfum fengið töluvert mikið af ábendingum síðasta sólarhring frá starfsfólki í verslunum sem kvartar undan framkomu viðskiptavinanna. Ef þið eruð pirruð þarna úti, ekki láta það bitna á starfsfólki verslananna. Það er ekki þau sem setja reglurnar. Þau eru bara að framfylgja því sem við segjum. Látið það frekar bitna á okkur. Við getum reynt að útskýra ef fólk er ekki að skilja það. Ekki láta það bitna á saklausu starfsfólki verslana sem er að gera sitt besta til að sinna okkar þörfum.“
Þá sagði Víðir að lokum:
„Að lokum, þetta sem við erum alltaf að segja, ef þér líður illa, vertu þá heima. Ef þú ert með einhverskonar einkenni, hálsbólgu, nefrennsli, vertu þá heima. Verum örugg, talaðu við lækninn þinn og fáðu að vita hvort þú megir fara út. Ekki fara út. Ekki taka íslenska víkinginn, með kvefið, hálsbólguna og beinverkina og ætla að mæta í vinnuna. Ekki gera það.“