Orð dagsins: „Einn heiðar­legasti fjöl­miðla­maður sem ég þekki“

Orð dagsins að þessu sinni á Freyr Eyjólfs­son, fjöl­miðla­maður á RÚV til margra ára. Freyr kemur kollega sínum, Helga Seljan, til varnar en eins og komið hefur fram hefur Sam­herji, eitt stærsta fyrir­tæki landsins, sakað Helga um slæ­leg vinnu­brögð í Sam­herja­málinu svo­kallaða.

Birti Sam­herji til að mynda þátt á YouTu­be þar sem fyrir­tækið gerir al­var­legar at­huga­semdir við frétta­flutning RÚV af málinu og þá einkum um heimilda­öflun frétta­mannsins Helga Seljan. Út­varps­stjóri og frétta­stjóri RÚV gefa þó lítið fyrir mál­flutning Sam­herja og sýna Helga fullan stuðning.

Það gerir Freyr Eyjólfs­son líka en þeir unnu saman í mörg ár og þekkjast því vel. Freyr sendi Helga fal­lega kveðju á Twitter í dag:

„Hann er einn heiðar­legasti og dug­legasti fjöl­miðla­maður sem ég þekki. Hann er engum háður. Hann er ekki í neinu stríði við neinn. Frekar næs gaur. Bara vinna vinnuna sína - segja fréttir og upp­lýsa.“