Aðstandendur Stefáns Arnars Gunnarssonar, sem ekkert hefur spurst til í þrjár vikur munu koma saman í Digraneskirkju á morgun, föstudaginn 24. mars til að senda honum hlýja strauma, ljós og birtu.
Stefán Arnar hvarf sporlaust 2.mars síðastliðinn en lögreglan lýsti eftir honum daginn eftir. Björgunarsveitir gerðu hlé á leitinni 17. Mars þar sem engar nýjar vísbendingar höfðu komið fram.
Samverustundin í Digraneskirkju hefst klukkan 17 og er opin og verður leidd af séra Alfreð Erni Finnssyni. Allir sem vilja sýna samhug velkomnir.
Jón Óðinn Waage, æskuvinur Stefáns Arnars Gunnarssonar skrifaði á dögunum hjartnæman pistill um vin sinn á dögunum. Hægt er að lesa pistilinn hér.