„Þarna fékk ég enn meiri trú á fólkið í landinu okkar,“ segir Anna Marín Ernudóttir sem er afar þakklát starfsfólki Olís í Norðlingaholti.
Þannig er mál með vexti að síðastliðinn mánudag var Anna, sem búsett er í Hveragerði, send á sjúkrahús eftir að í ljós kom að hún var með blóðtappa í hendinni.
Anna fór til Reykjavíkur með móður sinni á mánudeginum þar sem hún átti pantaðan tíma hjá lækni. Þar sem ætlunin var einungis að hitta lækninn og fara svo aftur heim tók Anna ekki með sér kort eða pening. Samdi hún um það við móður sína að hún, það er mamma hennar, tæki bensín á kreditkortið sitt í bakaleiðinni.
Hjá lækninum kom í ljós að Anna þurfti að dvelja lengur í Reykjavík og fór svo að hún var send á Landspítalann þar sem hún gekkst undir lyfjagjöf.
Vegna ástandsins í þjóðfélaginu var móður Önnu sagt að hún gæti ekki dvalið á spítalanum með henni. Þær kvöddust því í flýti, móðir hennar hélt sína leið en Anna fór inn.
„Eftir mjög svo langan dag fæ ég að fara heim rétt fyrir miðnætti. Ég fattaði þá að ég var að sjálfsögðu peningalaus, ekki með kort eða neitt til að redda mér bensíni. En svo mundi ég að það er hægt að borga með símanum,“ segir Anna.
„Ég kem svo upp á Olís Rauðavatni, og útskýri fyrir stelpunni að ég ætli að fá bensín fyrir 1000 krónur og ef þetta virkar með símann, var allt ótengt, ætla ég að koma aftur inn og fá pulsu. En svo kann ég ekkert á þetta, hún og ungi herrann reyndu að hjálpa mér að finna út úr þessu en það gekk ekki,“ segir Anna í Facebook-hópnum Jákvæðasta grúbban á Íslandi. Hún gaf Hringbraut góðfúslegt leyfi til að segja söguna.
Anna segir að á þessum tímapunkti hafi hún hugsað að líklega þyrfti hún að taka sénsinn á að keyra yfir til Hveragerðis. Mjög lítið eldsneyti var á bílnum og ef illa færi og hún yrði bensínlaus þyrfti hún bara að labba yfir. Veðrið umrætt kvöld var ekki sérstakt, grenjandi rigning og ekkert allt of hlýtt enda september að ganga í garð. Anna segir að starfsmaðurinn, yndisleg stúlka, hafi þá sagt við hana: „Þú mátt leggja inn á mig og ég skal borga.“
Anna segir að hún hafi verið hálf orðlaus:
„Mig langaði hreinlega að gráta, dauðþreytt eftir svooo erfiðan og langan dag, svo svöng og allt í rugli. En þarna bjargaði hún mér svo mikið að ég á bara ekki orð yfir góðmennsku hennar,“ segir Anna sem var með 2.500 krónur inni á reikning sem hún gat millifært af. Segir Anna að stúlkan hafi ekki einu sinni viljað að hún borgaði henni.
„Ég væri örugglega enn þá að labba heim frá Hellisheiðinni ef þau hefðu ekki bjargað mér í gegnum þetta allt saman, plús að ég fékk bestu pulsu sem ég hef á ævi minni fengið. Þau sáu hvernig mér leið, og það er stranglega bannað að skamma hana fyrir að hafa boðið mér þetta,“ segir Anna sem bætir við að hún ætli sér að baka fyrir stúlkuna og unga manninn og koma með til þeirra.
Anna sendir Olís svo góðar kveðjur. „Takk, takk, takk svo mikið fyrir að ráða svona yndislegt fólk á stöðina ykkar, þau unnu um miðnætti,“ segir hún og bætir við að lokum: „Ef þið lumið á auka bónus fyrir góða fólkið ykkar, mæli ég með þeim.“