Ómar birtir mynd og hneykslast á íslenskri umferðarmenningu

Ómar Ragnarsson, fjölmiðlamaður og þúsundþjalasmiður, birti mynd á bloggsíðu sinni í gær og segir að umrædd mynd segi meira en mörg þúsund orð um umferðarmálin hjá okkur.

Myndin sýndi umferðaröngþveiti á Vesturlandsvegi síðdegis í gær.

„Bílateppan er aðeins hluti af margfallt stærri teppu, þar sem þúsundir bíla komast ekki fetið. Þannig vill til, að síðuhafi á oft leið um þetta svæði þvers og kruss - á hjóli, oftast rafreiðhjóli, en einnig rafknúnu léttbifhjóli í bland, og einstaka sinnum á 125 cc léttbifhjóli,“ segir hann.

Ómar segir að ef vel er að gáð sjáist auð vegöxl hægra megin sem liggur meðfram bílaakstursbrautinni.

„En ekkert einasta hjól sést þar þótt rýmið ætti að vera nóg, því að yfirborðið er af öllu tagi, mismunandi slitið malbik og gróf möl á víxl. Mótbárur þess efnis að ekkert tilefni sé til að nota hjól á þessu svæði eru fyrir löngu orðnar úreltar, því að ný og fjölmenn hverfi eru þarna beggja vegna.“

Ómar segir að í ástandi eins og oft verður á þessu svæði myndi það létta á umferðarþunga hinna fyrirferðarmiklu bíla ef vélhjólum væri veitt brautargengi.

„Sem tækju við hluta af umferðrþunganum og væru þar að auki langfljótust í gegn. Þetta má sjá víða erlendis, en það "Ísland í dag" sem sést á þessari mynd virðist ætla að verða óumbreytanlegt.“