Myndbandsupptaka af stunguárásinni á Bankastræti Club er nú í dreifingu á samfélagsmiðlum. Fréttablaðiðhefur myndbandið undir höndum en telur ekki rétt að birta það að svo stöddu.
Á myndbandinu sést hvernig fjölmargir grímuklæddir einstaklingar ráðast inn í VIP-herbergið á Bankastræti Club og hlaupa að þremur einstaklingnum. Eins og greint hefur verið frá í fjölmiðlum réðust um 27 manns á þrjá menn um tvítugt og stungu þá margsinnis.
Mennirnir þrír reyna að verjast þeim með hnefum en það sést greinilega í myndbandinu hvernig mennirnir ráðast að þeim með eggvopnum. Einn liggur illa særður við innganginn á herberginu á meðan mennirnir hópast allir á hina tvo.
Mennirnir eru með lambhúshettur og covid-grímur. Þeir ganga harkalega og hratt að þeim. Það tekur árásarmennina um 46 sekúndur að ryðjast inn berja og stinga mennina og yfirgefa herbergið.
Í fyrra hluta myndbandsins má sjá árásarmennina ryðjast niður stigann.
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu mun leggja fram kröfu um gæsluvarðhald yfir tveimur einstaklingum til viðbótar við þá tólf sem sitja í gæsluvarðhaldi vegna stunguárásarinnar á Bankastræti Club síðustu helgi. Þetta staðfesti Margeir Sveinsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.
Margeir segir rannsóknina á árásinni sjálfri miða vel. „Atvik málsins eru ekki enn skýr í heildina, þó við séum búin að ná þokkalega vel utan um árásina sem slíka. Við erum komin með obbann af þessum mönnum í hús sem tóku þátt í þessu, þó einhverjir séu eftir. Hins vegar á eftir að skoða forsöguna og ástæðu þess að þessi árás var gerð,“ segir Margeir.