Gunnar Einarsson, bæjarstjóri í Garðabæ og bæjarfulltrúi þeirra Sjálfstæðismanna var með 28.8 milljónir króna í laun á síðasta ári. Þá voru launatengd gjöld Gunnars 5.798.459 krónur.
Þetta kom fram í svari bæjarstjórnar til Garðabæjarlistans við fyrirspurnum um ársreikning bæjarstjórnar í sveitarfélaginu. Laun Gunnars eru samkvæmt þessu 2.4 milljónir á mánuði. Í umfjöllun Vísis kom fram að Gunnar hefði verið með 2.65 milljónir á mánuði og var þá vitnað í tekjublað Frjálsrar verslunar.
Þar kom fram að Gunnar væri með hærri laun en borgarstjórinn í London sem er með 1.8 milljónir króna í laun á mánuði en sá stýrir 9 milljóna manna borg á meðan um 16 þúsund manns búa í Garðabæ. Þá sagði í umfjöllun Stundarinnar að Sjálfstæðismennirnir og bæjarstjórarnir Gunnar Einarsson og Ármann Kr. Ólafsson bæjarstjóri Kópavogs hefðu hærri laun en borgarstjóri New York.
Einnig kom fram hjá Stundinni að ofan á launin væri Gunnar með afnot af glæsibifreið. Þá sagði að þeir Gunnar og Ármann væri á fimmföldum lágmarkslaunum.
Í svara bæjarstjórnar í Garðabæ kom einnig fram að samtals voru laun bæjarfulltrúa 37.397.760 og launatengd gjöld 5.634.787. Laun fyrir nefndarsetu bæjarfulltrúa var 25.670.076 og launatengd gjöld 4.063.336. Þá var kostnaður fyrir aðra sem sátu í nefnd 22.847.136 og launatengd gjöld 3.371.963
Þá birti Vísir tekjuhæstu bæjarstjóranna á Íslandi en fimm efstu voru eftirfarandi:
Gunnar Einarsson, bæjarstjóri í Garðabæ: 2,65 milljónir
Elliði Vignisson, bæjarstjóri í Ölfusi: 2,26 milljónir
Ásta Stefánsdóttir, sveitarstjóri í Bláskógabyggð: 2,22 milljónir
Sævar Freyr Þráinsson, bæjarstjóri á Akranesi: 2,16 milljónir
Sturla Böðvarsson, fv. bæjarstjóri í Stykkishólmi: 2,06 milljónir
Katrín skammast og fær skammir
Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra hefur gagnrýnt þetta og kallaði launagreiðslurnar óhóf í Víglínunni á Stöð 2. Þess má geta að Katrín var samkvæmt úttekt USA Today í 17 sæti yfir launahæstu þjóðarleiðtoga heims. Þar sagði að Katrín hefði verið með 29 milljónir í árslaun. Fékk Katrín yfir sig holskeflu af gagnrýni þegar greint var frá hennar háu launum í íslensku miðlum. Þá hefur Steingrímur J. Sigfússon, forseti þingsins og þingmaður Vinstri grænna einnig verið gagnrýndur en hann kostaði þingið 27 milljónir á síðasta ári.
Ofurlaun bæjarstjóra hafa reglulega verið gagnrýnd. Fyrir fáeinum dögum gagnrýndi rekstrarhagfræðingurinn Hákon Þór Sindrason í Stundinni hin háu laun og í ljósi þeirrar stöðu sem upp er komin í samfélaginu skoraði hann á bæjarstjórana að lækka laun sín næstu mánuðina um milljón á mánuði en eftir að kórónaveiran hóf að herja á Ísland hefur atvinnuleysi aukist gríðarlega og margir sem munu eiga erfitt með að reka sín heimili þegar fram í sækir. Það sé því eðlilegt að alþingismenn og svo bæjarstjórar gangi fram fyrir skjöldu og lækki laun sín á meðan kórónatímabilið gengur yfir.