Þriðjudaginn 21.nóvember var haldin ráðstefna um netöryggismál seðlabanka í Kaupmannahöfn.
Ráðstefnan var sú fyrsta í röð ráðstefna sem seðlabankar Norðurlandanna áforma að efna árlega til um netöryggi.
Markmiðið er að miðla reynslu og þekkingu varðandi netöryggi.
Netárásir eru vaxandi ógn við fjármálakerfi og við fjármálastöðugleika.
Því telja seðlabankar Norðurlandannna mikilvægt að eiga frumkvæði í því auka vitund og viðbúnað til að verjast þeirri ógn sem netárásir eru.
Ríkislögreglustjóri og Póst - og fjarskiptastofnun benda á að ógninin fari vaxandi og að netárásir séu umfangsmeiri en áður.
Netárásir á lítt varin fyrirtæki og ríkisstofnanir eru því ógnvænleg þróun.
Nánar www.sedlabanki.is