Streymisveitan Netflix hefur gert samning við RÚV og framleiðslufyrirtækin Mystery og Truenorth um alheimssýningarréttinn að íslensku sjónvarpsþáttaröðinni The Valhalla Murders. Þetta er fyrsti samningurinn sem Netflix gerir um framleiðslu og fjármögnun á leikinni íslenskri þáttaröð. Frá þessu er greint í tilkynningu frá RÚV.
Áður hefur Netflix keypt sýningarréttinn að leiknum íslenskum þáttaröðum, leiknum kvikmyndum og heimildamyndum, en aldrei komið með beinum hætti að framleiðslu og fjármögnun íslensks verkefnis fyrr en nú.
„Þessi tímamótasamningur við Netflix og þetta mjög svo áhugaverða verkefni yfirhöfuð er stór áfangi í umfangsmikilli og markvissri vinnu okkar á RÚV sem miðar að því að auka til muna framboð, dreifingu en umfram allt gæði leikins íslensks sjónvarpsefnis,“ segir Magnús Geir Þórðarson útvarpsstjóri RÚV.
Fréttablaðið greinir frá því að samningurinn við Netflix tryggir að helmingur fjármögnuninnar við gerð þáttaraðarinnar muni koma erlendis frá, en heildarkostnaður framleiðslunnar er um 700 milljónir króna.
Truenorth og Mystery framleiða The Valhalla Murders og RÚV er meðframleiðandi, með stuðningi frá Kvikmyndamiðstöð Íslands. Þáttaröðin er hugarfóstur Þórðar Pálssonar, sem mun leikstýra þáttunum ásamt Þóru Hilmarsdóttur og Davíð Óskari Ólafssyni. Handritin skrifa Margrét Örnólfsdóttir, Óttar Norðfjörð, Mikael Torfason og Ottó Geir Borg. Valdís Óskarsdóttir klippir þættina ásamt Sigurði Eyþórssyni. Í aðalhlutverkum eru Nína Dögg Filippusdóttir og Björn Thors.
Söguþráður The Valhalla Murders er á þessa leið: Árið 2017 gengur raðmorðingi laus í Reykjavík. Þrjú fórnarlömb finnast með stuttu millibili, allt eldri borgarar, sem vekur óhug í samfélaginu. Þegar lögreglan rannsakar málið koma í ljós óhugnanlegir atburðir úr fortíðinni sem varpa ljósi á morðin.
Áætlað er að þáttaröðin, sem er nú í framleiðslu, verði sýnd á þessu ári.